Hf. Eimskipafélag Ãslands
100% kröfuhafa samþykktu nauðasamningsfrumvarp
Hf. Eimskipafélag Íslands / Release of a Adhoc News, transmitted by DGAP - a company of EquityStory AG. The issuer is solely responsible for the content of this announcement. ---------------------------------------------------------------------- FRÉTTATILKYNNING: Hf. Eimskipafélag Íslands: 100% KRÖFUHAFA SAMÞYKKTU NAUÐASAMNINGSFRUMVARP -Starfsemi félagsins tryggð og atvinna 1.500 starfsmanna Á kröfuhafafundi Hf. Eimskipafélags Íslands í dag voru greidd atkvæði um nauðasamningsfrumvarp félagsins. Atkvæði féllu þannig að 100% kröfuhafa greiddu atkvæði með frumvarpinu og var það því samþykkt samhljóða. Næstu skref verða þau að félagið mun leggja skriflega kröfu um staðfestingu nauðasamnings fyrir héraðsdómara í næstu viku, ásamt yfirlýsingu umsjónarmanns, Garðars Garðarsson, hrl. Gylfi Sigfússon, forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands: “Fjárhagsleg endurskipulagning Eimskips er búin að standa yfir í allmarga mánuði. Nú er stærsta áfanganum náð sem var að skapa Eimskip eðlileg rekstrarskilyrði og leggja grunn að framtíð félagsins. Stjórn og starfsmenn félagsins eru þakklátir kröfuhöfum fyrir stuðning við félagið á erfiðum tímum. Ég vil þakka starfsmönnum og viðskiptavinum félagsins fyrir stuðning og velvilja í garð þess á meðan á þessu ferli stóð. Án þeirra stuðnings hefði róðurinn verið vonlaus. Flutningastarfsemi félagsins er nú tryggð svo og störf um 1.500 starfsmanna. Mikilvægt á þessum tímamótum fyrir íslenskt atvinnulíf er að öll hjól atvinnulífsins fari nú að snúast á fullum afköstum. Með þessum áfanga er Eimskip að varða leiðina að endurreisn íslenskra fyrirtækja þjóðinni til heilla.” Reykjavík, 14. ágúst 2009 News Source: NASDAQ OMX 14.08.2009 Financial News transmitted by DGAP ---------------------------------------------------------------------- Language: English Issuer: Hf. Eimskipafélag Íslands Iceland Phone: Fax: E-mail: Internet: ISIN: IS0000011039 WKN: End of News DGAP News-Service ---------------------------------------------------------------------------
Latest News
Latest Reports
No Reports found
Upcoming Events
No Events found
Webcasts
No Webcasts found